long time no bleh
18. nóvember 2008 klukkan 22:22
kominn tími á smá blob öppdeit.
ætla henda hérna inn einhverjum myndum úr skólanum svo dyggir lesendur geti séð við hvaða aðstæður maður er að bardúsa.
en já skólinn gengur vel. átti ekki von á að læra svona mikið á svona stuttum tíma. farinn að skilja ansi vel þessa þvælu sem innfæddir babla og babla öðru hverju sjálfur. engilsaxneskan er þó aldrei langt undan.




hryllilega svöl maskína. til að byrja með tókum við bara upp á teip. það var fjör. allt annar fýlingur heldur en að vinna í öryggi digitalismans. ekkert undo í þessu helvíti.
frá vinstri. Mix Masta David. Fokkíngs hress danskur gutti. Mikill fagmaður og hefur farið víða (t.a.m. byggði hann stúdíó í Víetnam) Búinn að læra helling af þessum meistara.
Andreas (aka Dreze) Útúr poppaður house/80's eróbik elektró maður. Johann hryllilega svalur ska-pönkari. Mjög svo slakur karakter, kann sko að hanga harkalega. Er svo loose á'ðí að hann er sjaldnast allur í fötunum sínum :D Svo sést í hnakkann á Marco, hann þeytir aðalega skífur en hefur líka tekur að sér lítil auglýsinga verkefni.



já það er gaman að þessu.
heyrðu svo er kallinn bara að fara skella sér á SLAYER á föstudaginn. uss!
kem með netta færslu frá því.
og svo eftir tæpar tvær vikur þá er stefnan tekin á Grief og TRAP THEM!!!! það þurfa ALLIR að redda sér nýju Trap Them plötunni. Djöfulsins ofbeldi og kjaftæði. Fékk blóðbragð í munninn þegar ég hlustaði fyrst.
kvót frá ónefndum aðila: "Sjitt! Það er eins og einhver hafi hent sprengju inn í herbergið mitt."
Svo kom jóla bjórinn frá túborg um daginn. Er búinn að slengja þó nokkrum ljúflega niður.
Um að gera að hvolfa þessu í sig á meðan þetta er á hverju strái ;)
Ég eiginlega er ekki að fatta hvað það er stutt í að við flytjum heim. Til eina lands í heimi þar sem hægt er að kaupa eitthvað með íslenskum geimdollurum. Þetta verðlausa drasl er ekki beint að gera manni lífið auðvelt hérna. Ég meina kommon, 600 kúlur fyrir 2L kók. fuss. Salóme er búinn að pakka nánast öllu sínu drasli, það er meira að segja soldið síðan hún gerði það, (sækó) og hún er að tapa gleðinni yfir því að ég sé ekki byrjaður.
Draslið okkar fer með skipi þann 11.des og verðum við þá í tómri íbúð í 10 daga. uss það á eftir að reyna á.
Eigum kvöldflug þann 21. og lendum rétt fyrir miðnætti. Get ekki fokkíngs beðið. Á samt eftir að sakna þess að vera hér.
Ef þið eruð of chilluð á því og þurfið að rífa ykkur upp þá mæli ég með lesningu á tryllt víruðu stresskast bloggi
jæjagottíbilibæ.
ætla henda hérna inn einhverjum myndum úr skólanum svo dyggir lesendur geti séð við hvaða aðstæður maður er að bardúsa.
en já skólinn gengur vel. átti ekki von á að læra svona mikið á svona stuttum tíma. farinn að skilja ansi vel þessa þvælu sem innfæddir babla og babla öðru hverju sjálfur. engilsaxneskan er þó aldrei langt undan.




hryllilega svöl maskína. til að byrja með tókum við bara upp á teip. það var fjör. allt annar fýlingur heldur en að vinna í öryggi digitalismans. ekkert undo í þessu helvíti.
frá vinstri. Mix Masta David. Fokkíngs hress danskur gutti. Mikill fagmaður og hefur farið víða (t.a.m. byggði hann stúdíó í Víetnam) Búinn að læra helling af þessum meistara.Andreas (aka Dreze) Útúr poppaður house/80's eróbik elektró maður. Johann hryllilega svalur ska-pönkari. Mjög svo slakur karakter, kann sko að hanga harkalega. Er svo loose á'ðí að hann er sjaldnast allur í fötunum sínum :D Svo sést í hnakkann á Marco, hann þeytir aðalega skífur en hefur líka tekur að sér lítil auglýsinga verkefni.




já það er gaman að þessu.
heyrðu svo er kallinn bara að fara skella sér á SLAYER á föstudaginn. uss!
kem með netta færslu frá því.
og svo eftir tæpar tvær vikur þá er stefnan tekin á Grief og TRAP THEM!!!! það þurfa ALLIR að redda sér nýju Trap Them plötunni. Djöfulsins ofbeldi og kjaftæði. Fékk blóðbragð í munninn þegar ég hlustaði fyrst.
kvót frá ónefndum aðila: "Sjitt! Það er eins og einhver hafi hent sprengju inn í herbergið mitt."
Svo kom jóla bjórinn frá túborg um daginn. Er búinn að slengja þó nokkrum ljúflega niður.
Um að gera að hvolfa þessu í sig á meðan þetta er á hverju strái ;)
Ég eiginlega er ekki að fatta hvað það er stutt í að við flytjum heim. Til eina lands í heimi þar sem hægt er að kaupa eitthvað með íslenskum geimdollurum. Þetta verðlausa drasl er ekki beint að gera manni lífið auðvelt hérna. Ég meina kommon, 600 kúlur fyrir 2L kók. fuss. Salóme er búinn að pakka nánast öllu sínu drasli, það er meira að segja soldið síðan hún gerði það, (sækó) og hún er að tapa gleðinni yfir því að ég sé ekki byrjaður.
Draslið okkar fer með skipi þann 11.des og verðum við þá í tómri íbúð í 10 daga. uss það á eftir að reyna á.
Eigum kvöldflug þann 21. og lendum rétt fyrir miðnætti. Get ekki fokkíngs beðið. Á samt eftir að sakna þess að vera hér.
Ef þið eruð of chilluð á því og þurfið að rífa ykkur upp þá mæli ég með lesningu á tryllt víruðu stresskast bloggi
jæjagottíbilibæ.
ný færsla með gömlu handbragði.
06. október 2008 klukkan 17:51
eins og það er gaman að vera hérna í hálfvitalandi, breyta til, prufa eitthvað nýtt og fá væna summu inn á reikninginn í reynslubankanum, þá er leiðinn aldrei langt undan.

það verður að segjast eins og er að maður eyðir dágóðum tíma hérna einn.
þegar ég er í fríi þá er salóme í skólanum, og þegar salóme er í fríi þá er ég í skólanum.
og þó svo að ég sé evrópumeistari í að vera einn með sjálfum mér, þá lendi ég ítrekað í því að vera búinn að skoða allt sem til er á internetinu. það er alveg magnað hvað maður saknar margs.
ómerkilegar samræður um ekki neitt, þó svo ekki væri nema að sitja einhverstaðar með félaga sínum og stara út í loftið. þúngarokk getur verið ótrúlega gott, en aldrei betra en í góðra vina hóp. sóló kaffi/bjór og sígó kemst ekki með tærnar þar sem dúettinn hefur hælana.
nú þarf maður ekkert að flytjast af landi brott til að átta sig á þessu, en heima væri hægt að redda þessu með einu símtali. það er alltaf hægt að klína sér í kaffi einhverstaðar.
maður kynnist sjálfum sér þó allavega betur, það er ekki hægt að neita því. ég er t.d. búinn að komast að því að ég er miklu meiri félagsvera en ég hefði haldið.
samskipti í gegnum veraldarvefinn hafa hjálpað ótrúlega mikið. maður væri bara orðinn einhverfur ef ekki væri fyrir blessað netið.
svo er oft líka alveg æðislegt að hangsa einn heima með sjálfum sér, hálfnakinn, með eitthvað hnossgæti upp í sófa og glápa á tellíið eða togna á þumlum í tölvuspili.

farið vel með ykkur.
- hálfnakti hálfeinhverfi gaurinn.
hvað segiði? er allt að fara fjandans til?
29. september 2008 klukkan 16:57
já það ríkir víst fjármála óreiða á fróni. óreiða sem kemur sér sérstaklega illa fyrir námsmenn erlendis. t.a.m. er leigan okkar salmunda núna komin í tæplega 135 þúsund á mánuði en væri í áður ríkjandi góðæri ca. 70 þús.
blessunarlega truflar þetta mig ekki þar sem ég á enga peninga hvortiðer. mínusinn er svo gífurlegur að það skiptir engu máli hvort maður skuldar eina, tvær eða fimmtán milljónir 

það gerist ca. einu sinni á ári að ég kaupi mér buxur. ég er sérvitríngur þegar það kemur að fötum.
fata lagerinn minn samanstendur af þæginlegum (víðum) buxum sem telja má á fingrum annarar handar. haugur af þúngapaunks bolum og örfáar hettupeysur.
þar sem tískan í dag felst í því að ganga í buxum sem stöðva gjörsamlega allt blóðflæði í neðri líkama og kremja púngsa litla á þann máta að kauði kemur aldrei til með að þjóna tilgangi sínum aftur, þá er ekki til svo mikið til af buxum fyrir okkur hina sem vilja dangla frjálslega nema fyrir heljarinnar fjárhæðir.
um helgina síðustu kom sá tími árs þar sem ég keypti mér skálmar. salóme gaf mér aðra skálmina sem síðbúna afmælisgjöf. en þá er pylsan í rúsínuendanum eftir.
fyrir þessar buxur borguðum við 1þúsund danskar krónur. svona hryllilega fínar buxur hefði mátt kaupa á kanski 12 þús íslenskar krónur fyrir ekki svo löngu, sem er ekki svo slæmt.
í dag sit ég hér og blogga með mylsnu á bolnum í 20 ÞÚSUND KRÓNA BUXUM.
þetta er sennilega mín verðmætasta eign.
kreppa hvað. ég hef aldrei átt neinn pening, ég á engan pening og ég efast um að ég eigi nokkurtíman eftir að eiga einhvern pening.
ég er hamingjusamur þrátt fyrir það.
- jákvæði gaurinn í milljónkróna buxunum.
p.s. var fullur á laugardaginn og sullaði kertavaxi hressilega á buxurnar :P
aldrei er góð skvísa of oft til í sprell... eða þúst...
28. september 2008 klukkan 21:02
ekki búast við miklu. kanski skrifa ég einu sinni í viku, kanski ekki í fjórar, kanski tvisvar á dag.
rökstuddar, vel skrifaðar og málefnalegar færslur, sem og óþolandi, hrottalega niður hripaðar og innantómar sorp færslur.
tónlistarspjall verður án efa á dagskrá og jafnvel mitt daglega líf hér í einu heimskasta landi evrópu.
farið vel með ykkur og gangið á drottins vegi.
-Rænjyr (þúst... reynir á dönsku)
er á fullu að dömpa tenglum á síðuna. get ómögulega munað allt þetta waff waff waff púnktur com og is.
endilega þeir sem villast hérna inn, hendið í mig tenglum af bloggi, mæspeisi eða hverju sem er og ég smelli því í tengla safnið.
